Inicio Top Música Bad Bunny Música Cristiana Taylor Swift Ed Sheeran Luis Fonsi Ozuna Daddy Yankee J Balvin Maluma DMCA

Letra de 'Leyndarmál' de Ásgeir Trausti - Escucha y canta en New Musicas

Varios-artistas

Reggaeton Fresco

Varios-artistas

Top Hits 1985

Varios-artistas

K Pop Essentials

Varios-artistas

Viaje con Calma

Artist profile picture

Leyndarmál

Ásgeir Trausti

Canciones

Glitrar næturdögg og geng ég þar með henni
Grátur hvítvoðungs nú berst frá rauðu húsi.
Læðast refahjón og lafir bráð úr kjafti
Lerkiskógurinn hann fær nú margt að vita.

Þegar kóngurinn er með kross í hendi
Koma hersveitir til að ná í skammtinn
Svalir nátthrafnar sjá að nú er færi
Sjúkleg árátta fær þá til að virka.

Tifar lífsins blóm ég tóri ef ég nenni
Tárast silfurberg svo langt frá steinhúsi
Andar sunnanblær og eflist af lífskrafti
Enginn maður veit og enginn fær að vita.

Þegar kóngurinn er með kross í hendi
Koma hersveitir til að ná í skammtinn
Svalir nátthrafnar sjá að nú er færi
Sjúkleg árátta fær þá til að virka.

Þegar kóngurinn er með kross í hendi
Koma hersveitir til að ná í skammtinn
Svalir nátthrafnar sjá að nú er færi
Sjúkleg árátta fær þá til að virka.

Inicio Top Música Bad Bunny Música Cristiana Taylor Swift Ed Sheeran Luis Fonsi Ozuna Daddy Yankee J Balvin Maluma DMCA